HRAÐLESTRARKRAKKAR - Hraðlestur fyrir 7-12 ára

Viltu að barnið þitt lesi meira? Viltu auðvelda því að bæta lestrarfærnina?

Hér lærir barnið einfaldar lestraræfingar til að ýta undir lesgleði!
Á námskeiðinu lærir barnið einfaldar æfingar sem bæta lestrarfærni þess til frambúðar!

 

Markmið með námskeiðinu Hraðlestrarkrakkar er einfalt!

Markmið námskeiðsins okkar er mjög einfalt - og það er að fá 7-12 ára börn til að hafa gaman af því að taka upp bók og lesa sér til ánægju.

Markmiðið miðar að því að börnin séu farin að lesa 1-2 bækur á mánuði sér til skemmtunar eftir að námskeiði lýkur. Því að við vitum að ef barnið er farið að lesa 1-2 bækur á mánuði - 7-12 ára gamalt - þá er það ekki að lenda í vandræðum með lestur næstu skólastigum.

Fjarnám: 6 vikna námskeið fyrir 10-12 ára - OPIÐ NÚNA!

6 VIKNA fjarnámið er alltaf í gangi og því þarf barnið þitt ekki að bíða! Þegar barnið hefur setið fjarnámskeið - getur það síðan nýtt KRAKKAábyrgð og komið inn á staðnámskeið FRÍTT - helgarnámskeið eða 3 vikna hraðlestrarnámskeið fyrir 7-12 ára.

Vikulega opnast aðgangur að 55 mín. kennslumyndskeiðum á vef - sem eru aðgengileg í 36 tíma - á þeim vikudegi sem þú velur þér. Síðan hefjast 20 mín. daglegar lestraræfingar út hverja viku!

Taktu skrefið strax í dag og festu barninu þínu betri lestrarfærni og lestrarhraða í sessi til frambúðar! Leyfðu því að upplifa þá skemmtun sem góð bók veitir þeim - um leið og þú auðveldar þeim skólagöngu næstu ára!

Fá meiri upplýsingar

Staðnám: Staðnám í boði fyrir 7-12 ára

Þegar skráning á biðlista námskeiðs hefur náð nægum fjölda þá er ég að setja helgarnámskeið og 3 vikna námskeið af stað fyrir 7-12 ára!

Það er því mikilvægt að sýna áhuga með því að skrá barnið á biðlista og fylgjast vel með póstum frá mér með upplýsingum um námskeið sem eru á dagskrá.

Námskeið á dagskrá

Finnst þínu barni ekki gaman að lesa? Það mun breytast eftir námskeiðið!

Það skiptir engu máli hver lestrarfærni barnsins er þegar það kemur á námskeiðið - því þessar einföldu æfingar sem það lærir -hjálpa því - óháð lestrarörðugleikum s.s. lesblindu, athyglisbrest, ADHD eða hæglæsi.

Stór hluti þeirra barna sem koma á námskeiðið - eru ekki spennt að koma á lestrarnámskeið - en þegar þau sjá hraðatölur sínar eftir fyrstu æfingu - á fyrstu 15 mínútunum á námskeiðinu - þá vilja þau meira. Eftirleikurinn því auðveldur fyrir þig - passa upp á að barnið hafi nóg af lesefni.

 

Hve hratt les þitt barn? - FRÍTT vefnámskeið!

Lestrarhraði hefur áhrif á lestraránægju og lesgleði barnsins - um leið og einbeiting og eftirtekt verður minni ef barnið les mjög hægt. Þetta stutta FRÍnámskeið kennir þér einfalda leið til að sjá hve hratt barnið þitt les - og færð einföld ráð til að hjálpa því með næstu skref!

Skrá mig!

5 góð ráð til að hvetja barnið til að lesa meira!

Hér finnur þú stutta 5 daga póströð með 5 lestrarráðum handa foreldrum - til að hvetja barnið til að lesa meira. Þetta er hluti af 20 ráðum sem ég kenni foreldrum á námskeiðinu - 12 VIKNA FJARNÁMSKEIÐ - Lestrarhestar - mitt barn les!

Skrá mig!

15 lykilskref til að hjálpa 10-12 ára barni að hámarka árangur sinn á fjarnámskeiðinu!

Þú sem foreldri barnsins hefur oft mun meiri áhrif á árangur þess í heimanámi - sérstaklega í fjarnámi - en þú gerir þér kannski grein fyrir. Hér finnur þú ýmis ráð til að undirbúa barnið til að taka námskeiðið í fjarnámi!

Skrá mig!

Vantar þig hjálp? Ertu með spurningu?

Smelltu þá spurningu á mig hér - og ég verð í sambandi!

Ertu með spurningu um námskeiðin fyrir 7-12 ára, lestur barna eða lestraræfingarnar - sem þú vilt fá svar við í tölvupósti, síma eða ókeypis 15 mín. videó-fundi á vef?

Fá hjálp NÚNA!

Hvað segja ánægðir foreldrar um námskeiðið?

Linda

Mjög ánægð móðir

"Ég skráði dóttur mína á helgarnámskeiðið hjá Hraðlestrarskólanum. Hún er í 7 bekk og hefur verið hæg læs eða streðar svolítið þegar hún les. Hún hefur aldrei haft ánægju af því að lesa. Strax og ég sótti hana á námskeiðið þá sagði hún mér á fyrra bragði að þetta væri rosalega skemmtilegt námskeið! Það kom mér alveg svakalega á óvart að henni þætti gaman á einhverju lestrarnámskeiði. Við reynum að gera æfingarnar og um daginn sagði hún mér að í fyrsta skipti þætti henni gaman að lesa. Mér fannst hún strax eftir námskeiðið streða minna við lesturinn og það er meira flæði í honum núna. Í gærkvöldi vildi hún endilega lesa fyrir mig upphátt, óumbeðin, bæði las hún fyrir mig hratt og svo las hún líka fyrir mig skýrt. Hún hefur klárlega fengið meira sjálfstraust með lesturinn eftir námskeiðið."

Guðrún Sólveig

Mjög ánægð móðir

Mig langar að fá að þakka þér sérstaklega fyrir námskeiðið. Sá var spenntur að senda mér sms þegar hann var búinn í dag og segja mér að hann hefði náð 1078 orðum á mínútu en hafði í fyrsta tímanum verið með 168 orð á mínútu þannig að hann var að rúmlega sexfalda lestrarhraðann sinn á 14 dögum ásamt því sem skiptir meira máli að hann er farinn að njóta þess að lesa. Þvílíkur munur og áhuginn sem kom á þessum tveimur vikum. Hann les bara og les áfram án þess að ég þurfi að biðja hann um að lesa meira. Áður þurfti ég að halda efninu alveg að honum til að hann fengist til að lesa 1-2 síður í heimanáminu. Hann hefur klárað bókina Draumurinn alveg á námskeiðinu og einnig búinn að lesa í Henri var rænt í Rússlandi sem eru hvorutveggja alvöru lestrarbækur. Takk kærlega fyrir minn mann. Við gætum ekki verið ánægðari með árangurinn og sjálfstraustið sem kom út frá þessum tímum þar sem hann fór bara einn og hafði engan vin með. Mæli 100% með þessu námskeiði.

Ragnheiður

Mjög ánægð móðir

„Minn gutti hafði nú ekki mikla trú á sér í að hann gæti lesið eitthvað "hratt", en var tilbúinn til að prufa lestraskólann (eins og hann kallaði þetta). Alltaf sá maður hann njóta lesturs meira og meira, ef honum leiðist t.d. á daginn þá er hann fljótur að leggjast á hrúgaldið sitt eða í sófan og byrja að lesa, finnst gaman að skoða hvaða bækur eru að koma út og kíkja á bókasafnið. Þetta var eitthvað nýtt hjá okkur. Hann er búinn að standa í miklu aðgerðaferli á munnsvæði og er með fullt af auka "dóti" upp í sér sem tefur fyrir þegar hann þarf að lesa upphátt t.d. í skóla en núna hérna heima þá er þetta ekki vandamál, líka gaman að sjá hann fara í bílferð með eitthvað annað en snjalltæki núna er það einhver bók og þá helst brandarar og gátur. Ég mæli eindregið með þessu námskeiði fyrir krakka og ef ekki bara alla, þar sem ég lærði sjálf margt í gegnum drenginn ;) TAKK TAKK”

Íris

Mjög ánægð móðir

„Sonur minn var staðnaður í leshraða, ekkert aukist að ráði síðustu ár, en nú fór hann úr 160 orðum á mínútu í yfir 600 orð á mínútu. Hann spurði mig afhverju þetta er ekki skylduáfangi í grunnskóla, svo margt gott sem kemur út úr því að lesa hraðar. Hann er strax farinn að nota þetta í námi sínu í 8. bekk!“

Kjartan

Mjög ánægður faðir og afi 

„Sonur minn 12 ára var ekki mikið fyrir að lesa þrátt fyrir hvatningu og samlestur. Mest hefur það verið hæglestur á Andrésar Andar blöðum/Syrpu. Það var frábær fjárfesting að bjóða honum á þetta námskeið. Þarna sá hann fyrst að það var skemmtilegt að taka upp bók. Nú liggur Ævintýraeyjan eftir Enid Blyton, lesin á dagsparti á sófaborðinu. Hið sama má segja um 11 ára barnabarn, sem fékk að fljóta með. Bestu þakkir.”

Veiga Dögg

Mjög ánægð móðir

„Dóttir mín, 9 ára tók þátt í hraðlestrarnámskeiði hjá ykkur 3 föstudaga í röð. Henni fannst mjög gaman og efldist talsvert mikið í lestri. Það sem ég sé mestan mun á er áhuginn sem vaknaði og sjálfstraustið sem hún fékk við aukinn lestrarhraða og skilning. Jólin verða nýtt í betri yfirferð á viku 1-2 til þess að efla okkur enn betur. Bestu þakkir“