Ef að þú býrð á höfuðborgarsvæðinu eða nágrenni...
Áttu kannski erfitt með að mæta í staðnám eða finnur ekki dagsetningu sem hentar núna? - Kynntu þér fjarnámið okkar!
...þá mæli ég 3 vikna námskeiði - fyrir þá sem eru að leita eftir mikilli hjálp* við námsefni!
Þessi námskeið eru mjög vinsæl hjá menntaskólanemum og háskólanemum. Námskeiðið hentar öllum - óháð lestrarfærni þeirra í dag - sumir lesa hratt, aðrir eru hæglæsir, sumir með lesblindu og aðrir með athyglisbrest eða ADHD - en það hefur ekki háð þeim við þessar einföldu lestraræfingar sem þau læra á námskeiðinu.
*Mjög margir nýta blöndu af 3 vikna staðnámi og 6 vikna fjarnámi til að lengja ferlið eða 4-12 vikna EINKAKENNSLU til að kafa enn dýpra.
Kíktu á www.h.is/almennt

13 ára og eldri geta alltaf nýtt sér öll almennu hraðlestrarnámskeiðin!
Hér getur nemandi nýtt sér helgarnámskeið, 3 vikna námskeið og 10 vikna almennt námskeið - og er ég jafnan að hefja 2-3 almenn námskeið í hverjum mánuði! Meðalaldur á þessum námskeiðum er 27 ár - enda mikið um að háskólanemar og fólk úr atvinnulífinu sitji þessi námskeið.
Hér er ég ekki bara að skoða lestur í léttu lesefni - heldur kafa mikið dýpra - skoða lestur í flóknu námsefni, hvernig á að lesa námstexta, hvernig á að vinna úr honum, hvernig á að glósa og undirbúa fyrir próf og stór verkefni.
Ef þú býrð utan höfuðborgarsvæðis...
...þá mæli ég með fjarnámskeiðum okkar!
Í dag er hægt að taka hraðlestrarnámskeiðið í fjarnámi og það er í boði í nokkrum útgáfum - allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Vinsælasta námskeiðið er 6 vikna fjarnámskeiðið - en þar fer ég líka mikið dýpra í efnið en ég geri almennt á almennum hraðlestrarnámskeiðum hjá mér.
Hraðlestrarnámskeið - 6 vikna fjarnámskeið