Nýttu þér frístundastyrk frá þínu sveitarfélagi til að sitja hraðlestrarnámskeið!
Áttu inni tómstunda- eða frístundastyrk frá þínu sveitarfélagi?
Vissir þú að 7-18 ára börn og ungmenni geta notað frístunda- og hvatastyrki sveitarfélaga til að greiða námskeiðsgjöld á 10 vikna námskeiði Hraðlestrarskólans. Hægt er að skrá sig á 10 vikna unglinganamskeið - fyrir 13-16 ára eða 10 vikna almennt námskeið.
Ef þú þarft aðstoð við ráðstöfun þeirra styrkja þá máttu endilega hafa samband í gegnum netfangið – jovvi[hjá]hradlestrarskolinn.is eða smelltu á Messenger hér að neðan til að hafa samband í gegnum Facebook.
Til að nýta tómstunda- eða frístundastyrk þarf að skrá barnið á vefnum og láta svo vita í athugasemdum við skráningu eða tölvupósti að þú viljir greiða með frístundastyrk.
Styrkirnir eru misháir eftir bæjarfélögum og eru allar upplýsingar um ráðstöfun þeirra að finna á vefsíðu viðkomandi bæjarfélags:
Reykjavík Kópavogur
Garðabær Hafnarfjörður
Mosfellsbær Akranes
Hveragerði Selfoss
Seltjarnarnes Reykjanesbær
Frístundakortið – Frístundastyrkur – Tómstundastyrkur – Hvatapeningur – Frístundaávísun – Tómstundaframlag - Hvatagreiðslur
Umsagnir yngri nemenda Hraðlestrarskólans
10 vikna námskeið sem hjálpar 13-18 ára að bæta lestrarfærni, einbeitingu, athygli og eftirtekt í lestri - og þannig tækla allt námsefni - hraðar og betur en áður!
Markmið námskeiðsins okkar er mjög einfalt - og það er að gefa 13-18 ára unglingum einföld skref til að bæta lestrarfærni sína til frambúðar þannig að þau hafi ekki bara gaman af því að taka upp bók og lesa sér til ánægju - heldur hafi öll þau verkfæri sem þau þurfa til að tækla kröfuhart nám og starf í framtíðinni!
Lestrarþjálfun fyrir 7-12 ára börn! - Er þér umhugað um lestrarvenjur barnsins þíns? Skipta þær þig máli?
Viltu að 7-12 ára barnið þitt lesi meira – og læri að hafa gaman af því að lesa? Hér lærir barnið einfaldar lestraræfingar til að bæta lestrarfærni sína til frambúðar. Markmið okkar er einfalt. Að barnið þitt lesi 1-2 bækur á mánuði. Hér lærir barnið þitt að njóta þess að lesa bækur og að hafa gaman af því að taka upp bók.