
Katrín - 39 ára mastersnemi
„Ég heiti Katrín og mig langar að deila minni reynslu með ykkur. Ég þyki mjög góður nemandi og hóf mastersnám erlendis haustið 2013. Þetta er mjög spennandi nám, en það er óhætt að segja að ég varð fyrir nettu áfalli þegar lestrarefnið var tilkynnt. Lestrarmagnið sem kunna átti hverja viku var óheyrilega mikið og þegar fram liður stundir sá ég að þetta var mér lífsins ómögulegt að komast yfir. Nú voru góð ráð dýr og ég mundi að ég hafði alltaf ætlað á hraðlestrarnámskeið en lét aldrei verða af því. Nú var ég erlendis og vissi ekki hvernig ég átti að snúa mér. Þá sá ég að Hraðlestrarskólinn var að auglýsa einkakennslu á Netinu. Ég hafði strax samband og pantaði námskeið og fékk gögnin send um hæl. Jón Vigfús tók mér opnum örmum og við sniðum námskeiðið að þeim knappa tíma sem ég hafði. Það skipti engum togum að ég þrefaldaði leshraða minn á ensku á skömmum tíma! Fræðigreinar sem áður tók mig upp undir 4 klukkustundir að lesa, gat ég klárað á einni klukkustund. Ég er í tölfræði og þegar nemendurnir fréttu að ég væri búin að lesa alla tölfræðibókina, þá áttu þeir ekki orð, enda ekki nokkur annar búinn að reyna það! Ég nýt núna námsins og eins og svo margir, sé ég bara eftir því að hafa ekki pantað einkakennslu fyrr. Frábært að læra í gegnum Netið og persónuleg og góð þjónusta. Ég fékk einstök ráð sem ég bý að í framtíðinni. Hjartans þakkir fyrir mig.“
Stutt kynning:
ATH. Nýtt myndskeið kemur fljótlega en einkakennslan hefur verið mikið uppfærð frá því að þetta myndskeið var tekið upp.

Brynjar Örn Sveinjónsson - Flugmaður
„Ég get varla mælt nógu mikið með þessari einkakennslu! Þetta hefur verið frábært í alla staði og Jón er einstaklega fær leiðbeinandi. Námskeiðið fór langt fram úr mínum björtustu vonum og ég hef náð að margfalda lestrarhraðan á ekki nema 3 vikum sem mun nýtast mér afskaplega vel bæði í námi og starfi.“
Kennsluform:
6 vikna EINKAÞJÁLFUN Hraðlestrarskólans er ætluð þeim er þurfa að fá grunnþekkingu í hraðlestrartækninni fljótt og undir leiðsögn kennara í gegnum vef. Nemanda er þá fylgt eftir í 6 vikur með blöndu af einkakennslu í gegnum Google Meet, FB Rooms eða Zoom og aðgangi að 6 vikna fjarnámi með prófum, tilbúnum myndskeiðum og æfingum. Kennslan fer almennt fram fyrri hluta dags – kl. 7-15 – en almennt er kennslutími mjög sveigjanlegur og auðvelt að lengja æfingaferli og þá jafnan eftir hentugleika nemanda.
- Kennt á kennsluvef Hraðlestrarskólans
- Nýtt efni opnað einu sinni í viku
- Vikulegt árangursmat
Námskeiðið hentar fyrir:
- Háskóla- eða meistaranema erlendis eða hérlendis sem vegna búsetu eða anna komast ekki á almennt námskeið en þurfa að klára stór verkefni, ritgerðir eða undirbúa erfið og flókin próf.
- Stjórnendur sem vinnu vegna og anna hafa ekki kost á að sitja almennt námskeið - en þurfa vinnu sinnar vegna að lesa mikið af vinnutengdu lesefni, skýrslum, greinum, handbókum eða fundargerðum.
Heimanám og algengur árangur:
Gert er ráð fyrir að lágmarki klukkustundar daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali. Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er í námskeiðsgögnum á kennsluvef.
Algengur árangur:
Rúm þreföldun á lestrarhraða, 15-20% aukning á skilningi.
Innifalið í námskeiðagjaldi:
Mikill aðgangur að kennara í gegnum kennsluvef, aðgangur að kennsluvef með gögnum og æfingum á netinu, aðgangur að kennara og gögnum eftir að námskeiði lýkur og æviábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið fjarnámskeið eins oft yfir ævina og hann telur þörf.
KENNARI SKOÐAR meðal annars:
- Af hverju við lesum almennt svona hægt
- Hvernig hægt er að vel rúmlega tvöfalda lestrarhraða án þess að skilningur detti niður.
- Af hverju lestrarskilningur og lestraránægja eykst við að lesa hraðar.
- Skoðar lestur mismunandi lesefnis.
- Leiðir að finna aðalatriði með skjótum hætti.
- Grunnþætti þess að glósa markvissar.
- og margt fleira!

Eftir hverju ertu að bíða?
Byrjaðu STRAX í dag að bæta lestrarfærnina þína!
6 vikna EINKAÞJÁLFUN - Grunnpakki
99.500 kr.
Námsmenn: 85.500
6 x 60-75 mín. vikulegir veffundir í gegnum Google Meet, FB Rooms eða Zoom.
MJÖG TAKMARKAÐ SÆTAPLÁSS - aðeins fjórir á mánuði!
FYRSTUR KEMUR - FYRSTUR FÆR!
- Í þessari 6 vikna einkaþjálfun útskýri ég og kenni þér af hverju allir sem það vilja geta lesið rúmlega þrefalt hraðar en þeir gera í dag - og hjálpa þér að ná því takmarki á æfingaferlinu.
- Ég leiði þig í gegnum 20 ranghugmyndir sem gætu verið að halda aftur af þér í lestri.
- Ég leiði þig í gegnum einfaldar lestraræfingar sem munu leyfa þér að þróa og þjálfa lestrarhæfni þína og uppfæra lestrarvenjur þínar á æfingaferlinu.
- Ég mun síðan færa þig yfir í að þjálfa betur í því lesefni sem skiptir þig mestu máli. Hvort sem það eru skáldsögur, handbækur, námsbækur, skýrslur, vinnutengt lesefni, fræðigreinar eða annað álíka lesefni.
- Þú færð strax á fyrsta degi aðgang að 6 vikna fjarnámskeiði sem leiðir þig skref fyrir skref í gegnum allar æfingar og kennslu í um 730+ mínútum af tilbúnum myndskeiðum, æfingum og PDF-skjölum í gegnum einfaldan kennsluvef sem þú hefur aðgang að í gegnum vef eða app í síma eða spjaldtölvu.
- Auðvelt að lengja æfingaferlið í 11 vikna æfingaferli - og er því ítarlegasta námsferlið sem við bjóðum upp á...
- ...og svo miklu meira - allt eftir þínum þörfum og á þeim tíma sem hentar þér best!
*Velflest stéttarfélög greiða hluta af námskeiðagjöldum.
SKRÁ MIG NÚNA!8 vikna EINKAÞJÁLFUN - PLÚSPAKKI
119.500 kr.
Námsmenn: 99.500 kr.
Allt innifalið sem er í grunnpakka!
- 15-30 mín. vikulegur fundur - í framhaldi af eða til viðbótar við 60 mín. vikulega kennslu - yfir 6 vikna kennsluferlið.
- 60-75 mín. vikulegur aðhaldsfundur í tvær vikur í framhaldi af 6 vikna kennsluferlinu.
MJÖG TAKMARKAÐ SÆTAPLÁSS - aðeins tveir á mánuði!
FYRSTUR KEMUR - FYRSTUR FÆR!
SKRÁ MIG NÚNA!