HELGARNÁMSKEIÐ Í HRAÐLESTRI

 - Kennt í fjarnámi! - 

Hefst 15. júní

- KL. 12-14 - 

Hvernig rúmlega tvöfaldar þú lestrarhraðann þinn á einni helgi?

Kennsla: Kennsla fer alfarið fram í gegnum kennsluvefinn okkar, blanda af tilbúnum myndskeiðum, kennslu í gegnum LIVE myndskeið, einföld tilbúin skref og mikil hjálp fyrir og eftir námskeið á vefnum okkar.

Kennt á laugardegi og sunnudegi - ein helgi - 120-150 mín. hvorn dag - og svo hefst 3 vikna æfingaferli þar sem þér er leiðbeint í gegnum kennsluvef Hraðlestrarskólans.

FESTU ÞÉR SÆTI NÚNA!

Námskeiðið hefst eftir...

00

Daga

00

Klst.

00

Mín.

00

Sek.

LIVE Kennsla

120-150 mín. hvorn dag LIVE fundur í gegnum kennsluvef. Aðgangur að upptökum.

Tilbúin myndskeið

Aðgangur að tilbúnum myndskeiðum (um 350-400 mín.) með öllu kennsluefninu.

Æfingar og próf

Aðgangur að hraðlestraræfingum, prófum og einföldum skrefum yfir helgina - og í framhaldi.

Samskiptavefur

Aðgangur að samskiptavef þar sem nemendur geta fengið hjálp frá kennara í framhaldinu.

 

Á þessu helgarnámskeiði lærir þú ALLT sem þú vildir vita um hraðlestur og hvernig þú getur margfaldað lestrarhraðann þinn!

Markmið námskeiðsins okkar er mjög einfalt - og það er að gefa þér einföld skref til að bæta lestrarfærni þína til frambúðar þannig að þú hafir ekki bara gaman af því að taka upp bók og lesa þér til ánægju - heldur hafir öll þau verkfæri sem þú þarft til að tækla kröfuhart nám og starf í framtíðinni!.

 

Hér lærir þú...

...hvernig þú rúmlega TVÖFALDAR lestrarhraðann þinn á einum sólarhring!

Hér lærir þú...

...öll skrefin sem þú þarft að fylgja til að halda meiri einbeitingu og lesskilningi í öllu lesefni - jafnvel mjög þungu og flóknu námsefni!

Hér lærir þú...

...hvernig þú viðheldur margföldum lestrarhraða í framtíðinni og af hverju allir hafa tök á því að lesa miklu hraðar en þeir gera í dag!

Fullkomið til að tækla námsbækur og vinnutengt lesefni betur og hraðar!

Helgarnámskeið hentar fullkomlega fyrir önnum kafna nemendur í menntaskóla og háskóla - sem hafa lítinn tíma en þurfa hjálp til að taka á lestri í námsbókum, skáldsögum, glósutækni, tímastjórnun o.m.fl.

Er lestur er stór hluti af þínu starfi? – Handbækur, skýrslur, tölvupóstar, samningar, fundargerðir, námsbækur, tímaritsgreinar - á pappír eða rafrænt á tölvuskjá, lestölvum eða spjaldtölvum.

Allir geta lært markvissari leiðir að því að vinna úr sínum texta.

 

Bryndís Bolladóttir - 17 ára nemi

"Ég vissi að ég myndi ná árangri á námskeiðinu, hafði heyrt að það væri eiginlega ekki möguleiki á öðru. En árangurinn sem ég náði er vonum framar. Ég trúi þessu varla! Þetta ætti að vera skylduáfangi í framhaldsskóla. Þetta er þvílík bylting, og það bara eftir tvo daga!"

Soffía Rún - 22 ára nemi

„Ég vissi að ég myndi líklegast ná einhverjum árangri en þessi helgi fór fram úr björtustu vonum. Ég þarf ekki að kvíða bókastaflanum sem fylgir háskólanámi því nú hef ég öll þau tæki og tól til að tækla þær.“

Kristín Ben. - 23 ára nemi

"70% minni kvíði fyrir skólanum en fyrir helgina. Lærði tíu sinnum meira á einni helgi en á nokkrum árum. Græddi nokkur ár í tímasparnaði og bætti lífsgæði til muna. Love it!"

Er lesblinda, einbeitingarleysi eða athyglisbrestur að trufla?

Hefur þú greinst með lesblindu? Er athyglisbrestur eða ADHD að trufla einbeitingu? Ekki láta það trufla þig því að um 35% þeirra sem sitja námskeiðið eiga við einhverja lestrarörðugleika að stríða - en eru samt á meðal þeirra sem skara framúr í árangri eftir námskeiðið.

Hentar fyrir: Alla - (13-94 ára) - sérstaklega fyrir námsmenn en hentar líka fyrir fólk í atvinnulífinu eða þá sem þurfa eða vilja almennt lesa mikið.

Kennsluform:

  • Kennt á laugardegi og sunnudegi - ein helgi
  • 120-150 mín. hvorn dag í gegnum LIVE veffundakennslu með hópnum á kennsluvef.
  • Aðgangur að fyrstu skrefum og hraðakönnun - 7 dögum áður en námskeið hefst!
  • Stutt 7 daga tölvupóstaröð með upplýsingum um hvað þú þarft að hafa í huga fyrir námskeið.
  • Aðgangur að tilbúnum myndskeiðum (um 350-400 mín.) með öllu kennsluefninu af almenna helgarnámskeiðinu.
  • Aðgangur að upptökum af LIVE kennslu í framhaldi af námskeiði.
  • Aðgangur að hraðlestraræfingum, prófum og einföldum skrefum yfir helgina.
  • Aðgangur að samskiptavef þar sem nemendur geta skellt fram spurningum, vangaveltum og fengið hjálp frá kennara í framhaldi af námskeiði.
  • + Aðgangur að 6 vikna fjarnámskeiði í framhaldi - Almennt verð: 51.500 kr. (Námsmannaverð: 34.500 kr.) - en fylgir FRÍTT með helgarnámskeiði í fjarnámi!
  • Helgarnámskeiðinu ætlað að gefa þér öll grunnskrefin til að fara rétt af stað og koma vel undirbúinn inn í 6 vikna fjarnámið í framhaldinu - sérstaklega fyrir þá sem vilja halda áfram að bæta lestrarfærnina enn frekar!
  • 42 daga tölvupóstaröð með upplýsingum um hvað þú þarft að hafa í huga eftir námskeið í tengslum við 6 vikna fjarnámskeiðið. 

Eftir helgarnámskeiðið tekur við 10 daga hraðferð til að koma þér rétt af stað í heimanáminu með HÁMARKSárangri og síðan tekur 6 vikna fjarnámskeið við með æfingaferli þar sem nemandi beitir nýrri lestrartækni daglega og festir hana í sessi til frambúðar.

Heimanám: Gert er ráð fyrir að lágmarki 30-60 mín. daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali. Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er í námskeiðsgögnum.

Algengur árangur: Tvöföldun til fjórföldun á lestrarhraða, 20-25% aukning á skilningi. Hámarksárangur á lágmarkstíma.

Árangursábyrgð, 36 mánaða ánægjuábyrgð og æviábyrgð fylgir hraðlestrarnámskeiðum Hraðlestrarskólans og tryggir þér rétt til að sitja námskeið aftur þegar þú hefur meiri tíma án endurgjalds, hvort sem það er til að bæta grunninn enn frekar, skerpa kunnáttuna eða bara ná enn meiri árangri. Kynntu þér upplýsingar um ábyrgð Hraðlestrarskólans.

Verð

  • Almennt verð er 56.500 kr.

  • (Námsmenn 39.500 kr.)

– Velflest stéttarfélög greiða hluta af námskeiðagjöldum.

– Æviábyrgðin tryggir þér rétt til að endurtaka námskeiðið eftir þörfum eða sitja almennt helgarnámskeið í staðnámi þegar það er á dagskrá.

– Kíktu á ítarlegri upplýsingar um verð, greiðsluleiðir og afslætti.

Innifalið í námskeiðagjaldi..
Ítarleg námsgögn sem hægt er að nota eftir námskeið til að viðhalda árangri og halda áfram æfingum, mikill aðgangur að kennara á meðan að námskeiði stendur í gegnum kennsluvef, aðgangur að kennsluvef með gögnum og æfingum á netinu, aðgangur að kennara eftir að námskeiði lýkur og æviábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið námskeið eins oft yfir ævina og hann telur þörf.

+ 6 vikna fjarnámskeiðið fylgir FRÍTT í kaupbæti!

>> Almennt verð: 51.500 kr. (Námsmannaverð: 34.500 kr.) << FRÍTT fyrir þig!

Þar finnur þú um 790 mínútur af kennslu í gegnum myndskeið - eða rúmlega 13 klukkustundir af kennsluefni.

Þar finnur þú enn ítarlegri kennslu, einföld skref og æfingar til að bæta lestrarfærni þína til frambúðar þannig að þú hafir ekki bara gaman af því að taka upp bók og lesa þér til ánægju - heldur hafir öll þau verkfæri sem þú þarft til að tækla kröfuhart nám og starf í framtíðinni!

Helgarnámskeiðinu og vinnu þinni þar er ætlað að koma þér rétt af stað með allan grunn sem þú þarft til að vinna þig síðan í gegnum 6 vikna fjarnámið í framhaldi af námskeiðinu - með góðum aðgangi að kennara!

Skráðu þig á þetta helgarnámskeið í DAG!

Taktu skrefið strax í dag og festu þér betri lestrarfærni og lestrarhraða í sessi á einni helgi! Almennur árangur er rétt tæp þreföldun á lestrarhraða en það eru einstaklingar að sextánfalda lestrarhraðann á 3 vikna æfingaferlinu.

Gæti það hjálpað þér í náminu að lesa þrefalt til fjórfalt hraðar?

>> FESTU ÞÉR SÆTI STRAX Í DAG!