Myndskeið #1:
Bókin og skrefin sex
Myndskeið #2:
Markmiðasetning í námi
Myndskeið #3:
Tímastjórnun í námi
Myndskeið #4:
Geta allir lært að lesa hraðar?
Í hartnær áratug hef ég sérhæft mig í að kenna námsfólki – eins og þér – að bæta lestrarfærni og námstækni sína og þannig að gefa þeim tækifæri til að skara framúr í sínu námi.
Nám þarf nefnilega ekki að vera flókið en stundum viljum við flækja málin fyrir okkur. Þessari bók er ætlað að sýna þér nokkur mjög einföld skref til að einfalda námið ef þú ert nú þegar í vandræðum.
Þessari bók er ætlað að sýna þér hvað einn sólarhringur eða ein helgi getur verið dýrmæt – þegar við höfum réttu skrefin og getum fyrir vikið unnið hraðar og markvissar.
Það er dýrt að falla í námi. Það er dýrt að kasta frá sér vinnu heillar annar af því að við sjáum bara vandamál en engar lausnir. Sjáum ekki tréin fyrir skóginum.
Ef þú ert nú þegar í vandræðum þá bið ég þig um að hafa ekki áhyggjur. Sestu niður og lestu þessa stuttu bók í gegn og fylgdu skrefunum sem ég lýsi þar.
Ég skal lofa þér þessu að ef þú hefur það að vana að gefast fljótt upp – þá er þetta ekki bók fyrir þig.
Ég lofa þér líka að ef þú nennir ekki að hafa fyrir því að læra eða vinna vinnuna þína – þá er þetta ekki bók fyrir þig.
En ég lofa þér hins vegar að ef þú hefur metnað til að taka frá nokkra klukkutíma til að lesa bókina, taka skrefin og sinna síðan vinnunni næstu daga í framhaldinu til að klára önnina með stæl – þá er þetta rétta bókin fyrir þig.
Hvað ætlum við að skoða í bókinni? Hér finnur þú nokkur góð skref til að koma okkur af stað fyrir prófaundirbúninginn…
Ertu með góða yfirsýn yfir allt námsefnið?
Markmiðin, tímastjórnun og hvernig byrja ég strax?
Sestu niður og færðu bókhaldið í náminu – hvar liggja plúsarnir og hvar liggja mínusarnir?
Mikið lesefni eftir – ekkert mál – göngum beint í það
Eru verkefni ókláruð – ekkert mál – göngum beint í verkið
Undirbúa próftöku – þjálfum færni og hraða í að takast á við prófin
Byrjaðu því strax að taka upp betri vinnuaðferðir og nældu þér í bókina hér að neðan og sjáðu hvernig þessi einföldu skref gætu gert næstu prófatörn aðeins léttari.
>> KAUPA BÓKINA Á AMAZON.COM - NÚNA!50% Lokið
>> Í næsta skrefi færðu að sjá hve mikilvæg markmiðasetning er í námi og hvernig þú notar hana til að ná í meiri fókus í daginn þinn!