Hér finnur þú um 250 mínútur af grunnkennslu í gegnum myndskeið - ásamt prófum, æfingum og PDF-skjölum - sem hjálpa þér að lesa hraðar og markvissar í skáldsögum.
ára reynsla af tækninni erlendis!
ára reynsla á Íslandi!
ára reynsla kennara!
nemendur setið námskeiðið!
"Frábært, ef ég get tvöfaldað, og rúmlega það, lestrarhraða minn á 4 tímum, er bara hægt að gera kröfu á sjálfa mig um helmingi meir á næstu 2 vikum."
"Ef þú setur þér markmið nærðu því ef þú hefur verkfærin. Þau hef ég nú fengið á Hraðlestrarnámskeiðinu."
"Líst ákaflega vel á þetta. Hafin er hjá mér ferð sem á eftir að skila sér í miklu fleiri lesnum bókum."
"Á fjórum tímum náði ég að tvöfalda lestrarhraðann og jók skilning."
"Fyrir námskeiðið hafði ég litla trú á að ég gæti aukið lestrarhraðann en eftir sitja námskeiðið er ég viss um að ég eigi eftir að geta aukið hraðann enn meira."
"Spennandi námskeið sem ég hefði átt að fara á fyrir löngu. Hlakka til að takast á við lesturinn í framtíðinni."
"Ég var ekki viss um á hverju væri von, en námskeiðið kenndi mér nýja tækni sem mun nýtast mér vel í námi og starfi í framtíðinni. Ég er mjög ánægð með árangurinn."
"Góð og hnitmiðuð kynning, sem veitir manni trú á að hægt sé að ná verulegum árangri."
Fjarnámskeiðið - Hraðlestur fyrir alla! - er námskeið ætluð þeim er þurfa að fá grunnþekkingu í hraðlestrartækninni strax, um leið og lestrarhraði er hartnær tvöfaldaður á námskeiði sem tekur um fjórar klukkustundir að renna í gegnum. Í framhaldi er árangur námskeiðsins festur í sessi í gegnum 7 daga æfingaferli á nemendavef Hraðlestrarskólans.
Hér finnur þú um 250 mínútur af kennslu í gegnum myndskeið - með prófum, æfingum, PDF-skjölum - meiri hjálp frá kennara í gegnum ummælakerfi og tölvupósta - og margt fleira.
Námskeiðið hentar fullkomlega þeim sem lesa mikið af skáldsögum og vilja njóta þess að lesa mikið meira og þeim sem eru almennt að lesa mikið af léttu lesefni, í tímaritum, dagblöðum, tölvupóstum og léttu vinnutengdu lesefni. Þátttakendur kynnast á einfaldan hátt af hverju lestraránægja, lestrareinbeiting og lestrarskilningur, eykst við að lesa lesefnið okkar hraðar en við gerum í dag. Tekið er vel á lestri á tölvuskjá, lestölvum, spjaldtölvum.
Þó að námskeiði taki aðeins um 4 klukkustundir - þá finnur þú um 250 mínútur af myndskeiðum, ásamt prófum, æfingum og ýmsu aukaefni sem hjálpar þér að lesa hraðar í léttu afþreyingarefni.
Í framhaldi hefst 7 daga æfingaferli sem er kynnt og útskýrt á kennsluvefnum.
Þú hefur síðan 10 daga aðgang til að klára námskeiðið. Þú getur hlustað á myndskeiðin aftur og aftur - ýtt þannig undir enn meiri árangur - út allt æfingaferlið!
Nú og ef 10 dagar er ekki nóg fyrir þig - engar áhyggjur - þá er mjög lítið mál að hafa samband og biðja um aðeins lengri tíma.
Hér er hraðlestur kenndur í sínu einfaldasta formi, en á fjórum tímum fær nemandi öll verkfæri til að margfalda lestrarhraða í léttu lesefni til frambúðar á eigin spýtur. Námskeiðið er í raun fyrri dagur á helgarnámskeiði og horfir eingöngu á grunnatriði þess að lesa hraðar, öll atriði um námstækni, tímastjórnun, skipulag náms og tengt efni er því fellt út. Námskeiðið hentar því sem grunnskref í að takast á við létt lesefni og sem fyrsta skref í að kynna sér í framhaldi lengri hraðlestrarnámskeið þar sem farið er dýpra í lestur á flóknari texta t.d. námsbækur, handbækur, skýrslur og fræðigreinar.
Eftir námskeiðið tekur við 7 daga æfingarferli þar sem nemandi beitir nýrri lestrartækni daglega og festir hana í sessi til frambúðar. Nemandi hefur aðgang að kennsluvef Hraðlestrarskólans í 10 daga og þar hefur hann aðgang að æfingum og aukaefni. Nemandi getur þannig spólað tilbaka og rennt í æfingar eins oft og hann vill - gert er ráð fyrir að æfingar séu notaðar í að lágmarki í 7 daga. Gert er ráð fyrir að lágmarki klukkustundar daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali næstu 7 daga, mælt með að nota skáldsögur. Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er á kennsluvef. Markvisst er unnið að því að hver nemandi sé að ná tvöföldun á lestrarhraða sínum á grunnnámskeiðinu og hefur reynslan sýnt að það sé raunhæft markmið.
Nei - í raun ekki. Námsmenn geta náð góðu valdi á lestrarhraða með þessu námskeiði - en þetta námskeið er eingöngu ætlað að þjálfa fólk í að lesa hraðar í afþreyingarefni. Allt efni um námstækni, glósun, tímastjórnun, skipulag náms og tengt efni er ekki að finna hér - heldur eingöngu á 6 vikna fjarnámskeiðinu eða almennu námskeiði Hraðlestrarskólans.
Námsmenn eru að stórum hluta að leita eftir hjálp við að tækla lestur í flóknu lesefni á miklum hraða - og þá þarf meira til en þetta 4 klst. námskeið. Ég mæli frekar með 6 vikna fjarnámskeiðinu - eða að koma inn á almennt námskeið.
Námskeiðið tryggir þátttakanda að taka 6 vikna fjarnámskeið eða almennt hraðlestrarnámskeið (6 vikna, 3 vikna eða helgarnámskeið) í framhaldi á betra verði ef hann vill bæta þekkingu sína enn frekar.
Þeir sem kaupa aðgang inn á þetta námskeið tryggja sér um leið 10.000 kr. afslátt á 6 vikna fjarnámskeið eða almennt hraðlestrarnámskeið (6 vikna, 3 vikna eða helgarnámskeið) ef þau vilja, t.d. bæta lestur í flóknari lesefni tengt námi eða vinnu, tímastjórnun, glósun lesefnis, stjórnun einbeitingar í lestri og margt fleira.
Gert er ráð fyrir að lágmarki klukkustundar daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali. Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er í námskeiðsgögnum á kennsluvef.
Algengur árangur:
Tvöföldun á lestrarhraða, 10-15% aukning á skilningi.
*Velflest stéttarfélög greiða hluta af námskeiðagjöldum.
Innifalið í námskeiðagjaldi..
Ítarleg námsgögn sem hægt er að nota eftir námskeið til að viðhalda árangri og halda áfram æfingum, mikill aðgangur að kennara á meðan að námskeiði stendur í gegnum kennsluvef, aðgangur að kennsluvef með gögnum og æfingum á netinu, aðgangur að kennara eftir að námskeiði lýkur og æviábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið námskeið eins oft yfir ævina og hann telur þörf.
Öllum námskeiðum Hraðlestrarskólans fylgir ábyrgð - af því að þú átt það skilið!
Ef þú hefur setið námskeiðið - tekið allar æfingar og próf - sinnt 30-40 mínútna daglegum æfingum í allavega 7 daga samfellt - skilað daglega inn árangri í æfingaferlinu - og hefur ekki enn náð að TVÖFALDA lestrarhraða frá fyrsta prófinu - þá tryggir VEFÁBYRGÐIN þér að sækja fyrri dag (laugardag) á helgarnámskeiði - án þess að greiða aukalega fyrir það! - ÁRANGURStrygging fyrir þig!
Þú getur rifjað upp og óskað eftir að námskeiðið verði opnað fyrir þig - eins oft og þú vilt - til að bæta árangur enn frekar - til æviloka!
50% Lokið
>> Almennt verð: 19.500 kr.
>> Skráðu þig NÚNA og þú færð frekari greiðsluupplýsingar í næsta skrefi!