Svara almennt síma á milli kl. 14-17 - en oftast auðveldara að ná á mig í tölvupósti eða FB-Messenger - þar sem ég svara jafnan fyrr þar.
Svara almennt fyrirspurnum í tölvupósti innan 60 mín.
Fyrirspurnum á FB Messenger - er almennt svarað innan 15-20 mín.
Við kennum víðsvegar um landið en okkar aðalkennslustaður á höfuðborgarsvæðinu er í Menntasetrinu við lækinn – Gamla Lækjarskóla – Skólabraut 2 í Hafnarfirði.
ATH: Bendum á að bílastæði og inngangur er á bakvið húsið – gengið upp tröppur – og er almennt að kenna í stofu 203 á miðhæð.
Hraðlestrarskólinn hefur verið starfræktur frá árinu 1978 og hefur haldið hraðlestrarnámskeið árlega síðan. Á hverju ári eru að jafnaði haldin 2-3 námskeið mánaðarlega.
Skrifstofur skólans eru í Reykjanesbæ en við kennum aftur á móti út um allt land. Haldin eru 2-3 almenn námskeið í mánuði en einnig komum við og höldum námskeið í skólum og fyrirtækjum víðsvegar um landið. Eigendur Hraðlestrarskólans eru hjónin Jón Vigfús Bjarnason og Svanfríður Linda Jónasdóttir og hafa þau rekið skólann frá árinu 2005. Jón Vigfús er kennari á hraðlestrarnámskeiðunum.
>> Hver er kennarinn?Undanfarin ár hefur Hraðlestrarskólinn verið að gefa nemendum sínum aðgang að nokkrum þekktum íslenskum ritverkum á rafrænu formi og hér má sjá hluta af bókunum sem eru í boði. Eru þær hugsanlega á leslista í þínum skóla? >> Smelltu bara á þá bók sem þú vilt sækja - FRÍTT fyrir þig!
50% Lokið
Viltu fá pósta* þar sem ég útskýri hvaða FJÓRAR lestrarvenjur kunnáttusamir afbragðs lesendur hafa tileinkað sér til að lesa mikið af bókum - og njóta þeirra betur?