10 VIKNA HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ

 >> fyrir 16-19 ára! <<

6. feb. - kl. 19:45-21:15

Viltu auðvelda þér að klára framhaldsskólann!

Kennslustaður: Flatahraun 31, 2. hæð - Hafnarfirði.

Kennsludagar: 6. feb. - 13. feb. - 20. feb. - 27. feb. - 5. mar. - 12. mar. - 19. mar. - 26. mar. - 2. apr. - 9. apr. - Þriðjudagar frá kl. 19:45-21:15

FESTU ÞÉR SÆTI NÚNA!

Námskeiðið hefst eftir...

00

Daga

00

Klst.

00

Mín.

00

Sek.

Á þessu 10 vikna hraðlestrar-námskeiði lærir þú ALLT sem þú vildir vita um hraðlestur og hvernig þú getur margfaldað lestrarhraðann þinn!

Markmið námskeiðsins okkar er mjög einfalt - og það er að gefa 16-19 ára nemendum einföld skref til að bæta lestrarfærni sína til frambúðar þannig að þau hafi ekki bara gaman af því að taka upp bók og lesa sér til ánægju - heldur hafi öll þau verkfæri sem þau þurfa til að tækla kröfuhart nám og starf í framtíðinni!

 

Hér lærir þú...

...hvernig þú nærð margföldum lestrarhraða á nokkrum vikum og færð mikinn tíma með kennara til að festa það í sessi til frambúðar!

Hér lærir þú...

...öll skrefin sem þú þarft að fylgja til að halda meiri einbeitingu og lesskilningi í öllu lesefni - jafnvel mjög þungu og flóknu námsefni!

Hér lærir þú...

...hvernig þú viðheldur margföldum lestrarhraða í framtíðinni og af hverju allir hafa tök á því að lesa miklu hraðar en þeir gera í dag!

Betri lestrarvenjur, námsvenjur, glósuvenjur til að auðvelda þér framhaldsskólann!

Ertu langt á eftir? Eða ertu með allt á hreinu? Skiptir ekki máli - því þegar þú klárar 10 vikna hraðlestrarnámskeiðið þá verður allt nám mikið auðveldara! Hér færðu öll skrefin sem auðvelda þér að tækla allt námsefni - hraðar og betur en áður!

Reynir
17 ára nemi

“Námskeiðið bar mjög mikinn árangur. Ég þrefaldaði lestrarhraða minn.“

Þórhildur
18 ára nemi

“Einföld leið til að rífa upp lestrarhraða og einnig áhuga á lestri. Jón Vigfús er frábær fyrirlesari.”

Snorri
18 ára nemi

“Ég var alveg frekar bjartsýnn fyrir námskeiðið því ég hafði heyrt góða hluti. Og ég bætti lestrarhraða minn umtalsvert, svo námskeiðið skilaði árangri.“

Er lesblinda, einbeitingarleysi eða athyglisbrestur að trufla?

Hefur þú greinst með lesblindu? Er athyglisbrestur eða ADHD að trufla einbeitingu? Ekki láta það trufla þig því að um 35% þeirra sem sitja námskeiðið eiga við einhverja lestrarörðugleika að stríða - en eru samt á meðal þeirra sem skara framúr í árangri eftir námskeiðið.

Tanya
16 ára nemi

„Elska þennan skóla og Jón kennara.

Líney Sif
18 ára nemi

“Eftir námskeiðið þá hef ég aukið mikið orðaforða í lestri. Ég er mjög ánægð að hafa komið og mér finnst skemmtilegra að lesa bækur núna, því ég les hraðar.”

Jón Guðni
18 ára nemi

“Mjög sáttur með hvernig námskeiðinu lauk. Náði góðum árangri og er auk þess að nýta mér góða glósutækni við lestur. Þrefaldaði lestrarhraðann.”

Hér færðu öll réttu verkfærin í námið!

Það er ekki nóg að við kennum þér að lesa hraðar á þessu námskeiði. Við tökum líka fyrir lestur í flóknum texta, hvernig þú lest námsbækur hraðar og með betri einbeitingu og eftirtekt.

En við skoðum líka svo mikið meira:

  • Glósur og mikilvægi þeirra í námi.
  • Tímastjórnun í námi.
  • Hvernig á að undirbúa sig fyrir próf.
  • Hvernig á að taka próf.
  • Lestur í rafrænu efni á síma, spjaldtölvum og lestölvum.
  • Einbeitingarstjórnun í námi.
  • Leiðir að finna aðalatriði hraðar í námsefni.
  • Hvernig á að halda betri yfirsýn í námi.
  • + margt fleira.

Davíð Kári
18 ára nemi

“Nú get ég loks tekið skólann í nefið. Þetta var peninganna og tímans virði.”

Fjóla Dögg
17 ára nemi

“Ég bjóst við framförum en engan veginn svona miklum. Þetta námskeið er ekki einungis hvetjandi heldur gott veganesti í framtíðinni.”

Katrín Hrund
18 ára nemi í VÍ

“Ég hugsaði með mér að tvöfalda eða þrefalda lestrarhraðann en náði að fimmfalda hann. Miklu meira en ég bjóst við.”

Hentar fyrir: 16 til 19 ára framhaldsskólanema. 

Kennsluform:

  • Kennt einu sinni í viku - alls í tíu skipti
  • 90 mínútur í senn

Heimanám: Gert er ráð fyrir að lágmarki hálftíma daglegum heimaæfingum í lesefni að eigin vali. Lesið er samkvæmt æfingakerfi sem útlistað er í ítarlegum námskeiðsgögnum og þér fylgt eftir með kennslugögnum á kennsluvef.

Algengur árangur: Þreföldun til fjórföldun á lestrarhraða, 25-30% aukning á skilningi.

Árangursábyrgð, 36 mánaða ánægjuábyrgð og æviábyrgð fylgir hraðlestrarnámskeiðum Hraðlestrarskólans og tryggir þér rétt til að sitja námskeið aftur þegar þú hefur meiri tíma án endurgjalds, hvort sem það er til að bæta grunninn enn frekar, skerpa kunnáttuna eða bara ná enn meiri árangri. Kynntu þér upplýsingar um ábyrgð Hraðlestrarskólans.

Verð.

  • Almennt verð er 69.500 kr.

  • (Námsmenn 49.500 kr.)

– Velflest stéttarfélög greiða hluta af námskeiðagjöldum.

* Aldurstakmörk gilda inn á námskeiðið. Þátttakandi sem verður 16 ára á árinu getur setið námskeiðið en þátttakandi má ekki vera orðinn 20 ára.

**Hægt er að nota frístundastyrk sveitarfélaganna inn á þetta námskeið. - fyrir þátttakendur sem eru á aldrinum 16-18 ára!

– Kíktu á ítarlegri upplýsingar um verð, greiðsluleiðir og afslætti.

Innifalið í námskeiðagjaldi..
Ítarleg námsgögn sem hægt er að nota eftir námskeið til að viðhalda árangri og halda áfram æfingum, mikill aðgangur að kennara á meðan að námskeiði stendur í gegnum kennsluvef, aðgangur að kennsluvef með gögnum og æfingum á netinu, aðgangur að kennara eftir að námskeiði lýkur og æviábyrgð sem þýðir að nemandi getur endurtekið námskeið eins oft yfir ævina og hann telur þörf.

Skráðu þig á þetta 10 vikna hraðlestrarámskeið í DAG!

Taktu skrefið strax í dag og festu þér betri lestrarfærni og lestrarhraða í sessi til frambúðar! Það er ekki óalgengt að nemendur séu að fjórfalda til fimmfalda lestrarhraðann sinn en það eru líka nemendur sem hafa ÞRJÁTÍU OG EIN*-faldað lestrarhraðann sinn á þessu námskeiði!

*14 ára piltur fæddur 2006 - las 105 orð á mínútu með 40% lesskilning í lesprófi í fyrsta tíma þann 1. september 2020 en las í lok námskeiðs 31-sinni hraðar en nú með 80% lesskilning í lokaprófi!

Gæti það hjálpað þér í náminu eða lífinu almennt að lesa fjórfalt hraðar en þú gerir í dag?

FESTU ÞÉR SÆTI STRAX Í DAG!